Home Fréttir Í fréttum Nýi garðskálinn glæsilegur

Nýi garðskálinn glæsilegur

39
0
mbl.is/Hákon

Nýr garðskáli við Ráðherrabústaðinn er glæsilegur að sjá en hann fékk nýlega að líta dagsins ljós.

Framkvæmdir hafa staðið yfir í bústaðnum síðan haustið 2023 og mikið tréverk skýlt þessum hluta hússins fyrir veðri og vindum. „Hulunni“ hefur nú verið svipt af skálanum.

Bústaðurinn sjálfur á rætur að rekja í Önundarfjörðinn en þar var hann reistur árið 1892 við Sólbakka.

mbl.is/Hákon

Hans Ellefsen hvalfangari seldi Hannesi Hafstein, fyrsta íslenska ráðherranum, bústaðinn í byrjun 20. aldar og var hann fluttur til Reykjavíkur. Síðustu áratugi hefur húsið verið notað fyrir fundarhöld og opinberar móttökur.

Heimild: Mbl.is