Home Fréttir Í fréttum Undirritun samnings um uppsetningu á aðaltöflum rafmagns Nýs Landspítala

Undirritun samnings um uppsetningu á aðaltöflum rafmagns Nýs Landspítala

132
0
Samninginn undirrituðu Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra og Unnar Steinn Hjaltason fyrir hönd VHE. Vottar fyrir hönd NLSH voru Hjalti Geir Unnsteinsson, verkefnastjóri á hönnunarsviði og Steinar Þór Bachmann, verkefnastjóri á framkvæmdasviði.

Þann 31. mars var undirritaður samningur á milli NLSH ohf. og VHE ehf. um smíði og uppsetningu á aðaltöflum innan meðferðarkjarna, rannsóknahúss og bílastæða- og tæknihúss. Jafnframt nær verkið til skinnustokka og dreifitaflna fyrir 400V afldreifingu.

Fulltrúar verkkaupa og verktaka ásamt heilbrigðisráðherra.

Heimild: NLSH.is