
Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, hefja nú í apríl vinnu undir Borgarfjarðarbrú þar sem endurnýja og stækka á lagnir fyrir kalt og heitt vatn fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi, eins og segir á heimasíðu Veitna.
Framkvæmdin er samstarf Veitna, Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna Mílu og Ljósleiðarans. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári. Óhjákvæmilega mun þetta leiða til talsverðrar röskunar á bílaumferð um Borgarfjarðarbrúna.
Lagnirnar, ásamt strengjum Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna, liggja undir Borgarfjarðarbrúnni.
Heimild: Mbl.is











