
Þann 31. mars var undirritaður samningur á milli NLSH ohf og Ístaks hf. um innanhússfrágang og stýriverktöku frá kjallara K2 til 4. hæðar í meðferðarkjarnanum. Einnig nær samningurinn til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á sömu hæðum.
Samningurinn er einn sá stærsti sem gerður hefur verið við verkefnin á Hringbrautarsvæðinu eða að upphæð 15,9 milljarðar króna m. vsk.

Ístak hf. hefur áður unnið við meðferðarkjarnann en fyrirtækið sá um allan þakfrágang.
Þá er Ístak einnig að ljúka alverki við byggingu 4.500 fermetra endurhæfingarspítala á Grensás, en NLSH samdi við fyrirtækið 2024 um það verkefni.
Heimild: NLSH.is











