Bandarískur dómstóll hefur fyrirskipað stöðvun framkvæmda við fyrirhugaðan danssal við Hvíta húsið sem Donald Trump lét hefja eftir að hafa látið rífa hluta Hvíta hússind undir framkvæmdirnar.
Dómarinn, Richard Leon, sagði í úrskurði sínum að forsetinn væri vissulega „ráðandi umsjónarmaður“ Hvíta hússins en „ekki eigandi þess“. Því þurfi samþykki Bandaríkjaþings fyrir framkvæmdinni.
Málið kom til kasta dómstóla eftir að minjavernd sem vinnur að verndun sögulegra bygginga (National Trust for Historic Preservation) kærði framkvæmdirnar.
Austurálman jöfnuð við jörðu
Trump, sem er fasteignamógúll að upplagi, hefur lengi talað fyrir byggingu stórs viðburðasalar við forsetabústaðinn og vakti mikla athygli í október þegar hin sögulega austurálma Hvíta hússins var jöfnuð við jörðu til að rýma fyrir verkefninu.
Á samfélagsmiðlum réðst forsetinn harkalega á samtökin og kallaði þau meðal annars „öfgafullan vinstrihóp brjálæðinga“. Hann hefur jafnframt lýst því yfir að salurinn yrði „sá glæsilegasti sinnar tegundar í heiminum“.
Ákvörðun eigi að liggja hjá þinginu
Verkefnið, sem talið er kosta á bilinu 200 til 400 milljónir dala, eða því sem nemur 24-28 milljörðum króna, á samkvæmt Trump að vera fjármagnað með framlögum einkaaðila, þar á meðal stuðningsmanna hans og fyrirtækja.
Í úrskurðinum segir að ákvörðun um slíkar framkvæmdir liggi hjá þinginu, sem þurfi jafnframt að taka afstöðu til fjármögnunar þeirra. Framkvæmdirnar verði því stöðvaðar þar til slíkt samþykki liggi fyrir.
Dómarinn veitti þó tveggja vikna frest áður en ákvörðunin tekur gildi, til að gefa forsetanum kost á að áfrýja.
Undanfarna mánuði hefur Trump sett sitt mark á forsetasetrið með ýmsum breytingum, meðal annars með breytingum á Rósagarðinum og skreytingum í forsetaskrifstofunni.
Heimild: Mbl.is












