Vegagerðin býður hér með út viðgerðir á malbiki á Suðursvæði 2026. Verkið felst í viðgerðum á malbikuðum slitlögum á stofnæðakerfi Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Suðurlandi að Hveragerði og Þorlákshöfn og norður fyrir Hvalfjarðargöng.
|
Sagaðar viðgerðir
|
80 m2
|
|
Fræstar viðgerðir
|
2.750 m2
|
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 30. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.












