Nýtt iðngreinahús hefur ekki enn risið við Menntaskólann á Ísafirði, þvert á loforð ríkisins. Taka átti húsið í notkun um áramótin – en framkvæmdir eru ekki einu sinni hafnar.
Stjórnendur Menntaskólans á Ísafirði eru orðnir langeygir eftir nýrri verknámsaðstöðu. Tvö ár eru síðan þáverandi menntamálaráðherra skrifaði undir viljayfirlýsingu með sveitarfélögum við Djúp.
Átján nemendur hófu nám í hárgreiðslu við skólann í haust. Samkvæmt tímalínu hefðu þau átt að fá nýja vinnuaðstöðu um áramótin. Nemendur í rafvirkjun og húsasmíði þurfa einnig að láta sér lynda aðstöðu í kjallara þar sem lofthæð er lág, loftræsting léleg og plássið af skornum skammti.
„Þá gjalda heimavistarbúar það með miklum hávaða og látum, ekki vinsælustu herbergin á vistinni,“ segir Heiðrún Tryggvadóttir skólameistari.
Stjórnendur hafa verið fullvissaðir um að verkefnið væri að fullu fjármagnað. Tveimur árum seinna er Heiðrún hætt að upplýsa starfsfólkið þegar nýjum dagsetningum er lofað.
Heimild: Ruv.is












