Home Fréttir Í fréttum Samið við Fossvélar og Suðurverk um jarðvinnu

Samið við Fossvélar og Suðurverk um jarðvinnu

221
0
Að loknum samningum, í fremri röð: Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, Guðbjartur Jón Einarsson, verkefnisstjóri nýframkvæmda hjá Landsvirkjun og Jón Örn Ingileifsson, forstjóri Fossvéla. Aftari röð: Sigrún Elva Reynisdóttir, sérfræðingur í innkaupum hjá Landsvirkjun, Guðmundur Ólafsson, verkefnisstjóri hjá Suðurverki, Elísabet Edda Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Fossvéla og Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri nýframkvæmda hjá Landsvirkjun.

Landsvirkjun gekk í síðustu viku frá samningum við Fossvélar ehf. og Suðurverk hf. um gröft og jarðvinnu vegna Hvammsvirkjunar.

Fyrirtækin buðu lægst í útboðinu sem opnað var þann 3. mars sl. Tilboð Fossvéla og Suðurverks nam 896.221.410 kr., en kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var 1.404.703.952 kr. Upphæðir eru án virðisaukaskatts.

Verkið felur í sér umfangsmikla jarðvinnu á framkvæmdasvæði Hvammsvirkjunar. Þar verður grafið upp laust efni á þeim svæðum þar sem fyrirhugað er að reisa steypt mannvirki og að hluta til stíflur. Auk þess verður skorið úr bergi í rennslisskurðum. Í verkinu felst jafnframt haugsetning uppgrafins efnis, nýting þess í plön og slóða og flokkun grjóts. Verkið er einn af lykilþáttum í undirbúningi mannvirkja við Hvammsvirkjun og markar undirritun samningsins nýjan áfanga í framkvæmdum á svæðinu.

„Það er ánægjulegt að nú hafi verið samið um þennan verkþátt, sem er eitt af stærri jarðvinnuverkum verkefnisins. Með því hefur verið stigið risa skref í undirbúningi framkvæmda við Hvammsvirkjun,“ segir Ólöf Rós Káradóttir, yfirverkefnastjóri Hvammsvirkjunar.

“Við hlökkum til að hefjast handa við þetta mikilvæga verk og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Hvammsvirkjunar. Í þessum fasa höfum við með okkur sterkan samstarfsaðila og við hlökkum til samstarfsins við bæði Suðurverk og Landsvirkjun ásamt öðrum aðilum sem að verkinu koma,“ segir Jón Örn Ingileifsson, forstjóri Fossvéla.

Heimild: Landsvirkjun.is