Home Fréttir Í fréttum 30.04.2026 Hlemmtorg norður og Borgarlína um Hlemm – Gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur

30.04.2026 Hlemmtorg norður og Borgarlína um Hlemm – Gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur

138
0
Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar fyrir hönd Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjarvíkurborga, óskar eftir tilboðum í Hlemmtorg norður og borgarlína um Hlemm, gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur, EES útboð nr. 16279.

Framkvæmdin felur í sér endurgerð á gatnamótum Snorrabrautar og Hverfisgötu, endurgerð á götukafla á Snorrabraut á milli Bríetartúns að Hverfisgötu, gerð torgsvæðis norðan borgarlínuás auk svæða sunnan við borgarlínuás frá gatnamótum og austur fyrir Hlemm mathöll og gerð Borgarlínu um torgsvæði Hlemms auk uppsetningar tveggja biðstöðva Borgarlínu á Hlemmsvæði.

Núverandi fráveitulagnir verða endurnýjaðar með tvöföldu kerfi regnvatns- og skolps. Vatns- og hitaveitulagnir verða endurnýjaðar ásamt raf- og fjarskiptalögnum, borgar- og torglýsingu. Einnig verða umferðarljós við Snorrabraut/Hverfisgötu og Snorrabraut/Laugaveg endurnýjuð.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:15 þann 30. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00,  þann 30. apríl 2026.