Home Fréttir Í fréttum Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra

Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra

42
0
Ferðamenn koma í stað lögreglumanna í húsinu. mbl.is/Eyþór

Eigandi hússins að Skúlagötu 21 í Reykjavík stefnir að því að breyta því í gistiheimili. Rakaskemmdir og mygla hafa komið upp í húsinu á síðustu misserum.

Embætti ríkislögreglustjóra var með skrifstofur í húsinu um 25 ára skeið þar til á síðasta ári. Haustið 2024 komu upp veikindi hjá starfsfólki embættisins sem tengdust húsinu og var starfsemin flutt að Rauðarárstíg þar sem utanríkisráðuneytið var áður til húsa.

Heimar atvinnuhúsnæði ehf. vilja nú breyta notkun hússins úr skrifstofuhúsnæði í gistiheimili. Það er þriggja hæða og var byggt árið 2000. Lagt er upp með að breyta húsinu þannig að í stað skrifstofuhúsnæðis verði þar 60-80 herbergja íbúðahótel með áherslu á fjölskyldur sem þurfa svefnpláss fyrir 4-6 gesti.

Félagið sendi fyrirspurn til skipulagsfulltrúa vegna þessara áforma og tók hann jákvætt í þau. Málið er ekki enn komið í formlegan farveg. 

Heimild: Mbl.is