Home Fréttir Í fréttum Skrifað undir verksamning um byggingu vatnstanks við Upsa á Dalvík

Skrifað undir verksamning um byggingu vatnstanks við Upsa á Dalvík

138
0
Á myndinni eru Björn Friðþjófsson, framkvæmdastjóri Tréverks ehf., og Eyrún Ingibjörg sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar við undirritun samnings um byggingu nýs vatnstanks við Upsa á Dalvík.

Tréverk ehf. hefur undirritað samning við Dalvíkurbyggð um byggingu nýs vatnstanks við Upsa á Dalvík.

Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd sem felur í sér jarðvinnu, lagningu lagna og uppsteypu á nýjum vatnstanki. Tankurinn verður um 900 m³ og mun styrkja vatnsöflun og rekstraröryggi vatnsveitu sveitarfélagsins.
Framkvæmdir hefjast á næstunni og er stefnt að því að taka tankinn í notkun haustið 2026. Lokafrágangur verksins mun síðan fara fram á árinu 2027.
Heimild: Treverk.is