Home Fréttir Í fréttum Fá ekki leyfi til að rífa braggann

Fá ekki leyfi til að rífa braggann

103
0
Bragginn mun standa við Flugvallarveg, í bili í það minnsta. mbl.is/Hulda Margrét

Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík þarf að sætta sig við bragga sem stendur á lóð sveitarinnar við Flugvallarveg 7a í Reykjavík en skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur hafnað beiðni sveitarinnar þess efnis að bragginn verði rifinn eða færður í braggaþyrpingu á horni Flugvallarvegar og Bústaðavegar.

Sveitin vill fá leyfi til að stækka vélageymslu á svæði sínu en til þess er nauðsynlegt að bragginn víki.

í Reykjavík þarf að sætta sig við bragga sem stendur á lóð sveitarinnar við Flugvallarveg 7a í Reykjavík en skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur hafnað beiðni sveitarinnar þess efnis að bragginn verði rifinn eða færður í braggaþyrpingu á horni Flugvallarvegar og Bústaðavegar.

Sveitin vill fá leyfi til að stækka vélageymslu á svæði sínu en til þess er nauðsynlegt að bragginn víki.

Heiða Jónsdóttir, formaður Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur, segist vera orðin þreytt á samskiptum við Reykjavíkurborg en svör frá borginni hafa að hennar sögn verið misvísandi og oft og tíðum engin. Þess má geta að skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar stakk sjálfur upp á þeim möguleika í samskiptum sínum við sveitina að færa braggann í braggaþyrpinguna á horni Flugvallarvegar og Bústaðavegar, en því hefur skipulagsfulltrúi nú hafnað.

Bragginn er úr sér genginn og nýtist lítið sem ekkert í starfsemi Flugbjörgunarsveitarinnar.

Heiða bendir á að Reykjavíkurborg hafi síðastliðin ár fallist á niðurrif á öðrum bröggum í borginni og þykir henni borgin því ekki hafa gætt jafnræðis í þessu tilfelli.

Heimild: Mbl.is