Í verkinu felast breytingar á núverandi skrifstofuhúsnæði Rarik á Þverklettum 2 á Egilsstöðum. Um er að ræða tveggja hæða skrifstofubyggingu auk kjallara. Burðarviki hússins er steypt.
Húsið er einangrað múrað og málað að innan en að utan eru veggir múraðir og málaðir. Umtalsverðar breytingar verða á skrifstofuhæðum en minniháttar breytingar verða á kjallara. Húsnæðinu verður breytt úr einstaklingsskrifstofum yfir í opið verkefnamiðað vinnurými. Fjarlægja á alla létta milliveggi á skrifstofuhæðum auk þess sem hreinsa á úr loftum og fjarlægja gólfefni. Lagnir verða endurnýjaðar og loftræstikerfi sett í húsið. Salerni verða endurnýjuð og lyfta sett í húsið.
Utanhúss verður mesta breytingin við inngang hússins þar sem brjóta á upp útidyratröppur og þær færðar framar ásamt því að hjólastólarampur verður steyptur. Byggja á steypta brú yfir á þak geymsluhúsnæðis á lóðinni og nokkrar endurbætur verða gerðar á lóðinni.
Bætt verður við fjölda bílastæða og undirstöðum fyrir rafmagnshleðslu komið fyrir.
Verk skal hefjast 5. maí 2026 og vera lokið 1. júní 2027.
Tilboðum skal skilað inn með rafrænum hætti á útboðsvef RARIK.
Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.
| Útboðsgögn afhent: | 27.03.2026 kl. 14:25 |
| Skilafrestur | 24.04.2026 kl. 14:00 |
Útboðsgögn og allar frekari upplýsingar má finna á útboðsvef RARIK.












