F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Yfirborðsmerkingar 2026, útboð nr. 16285.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið snýst um viðhald á yfirborðsmerkingum í Reykjavík. Um er að ræða formerkingar, mössun akreinalína og sprautuplöstun kantlína, mössun og málun stakra merkinga og málun á bílastæðum og göngu- og hjólastígum.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 14:00 þann 27. mars 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 16. apríl 2026.












