Bæjarfulltrúi í minnihluta í bæjarstjórn Árborgar hefur áhyggjur af stöðu húsnæðis fyrir eldri borgara á svokölluðu Grænumarkarsvæði á Selfossi. Sjö íbúðir standa tómar. Bæjarstjóri segir nýtt deiliskipulag í vinnslu.
Bæjarfulltrúi í minnihluta í bæjarstjórn Árborgar hefur áhyggjur af stöðu íbúðarhúsnæðis á svokölluðu Grænumarkarsvæði á Selfossi, þar sem eru sextán eldri borgara íbúðir.
Nú eru sjö íbúðir lausar í húsunum við Grænumörk eitt og þrjú og bæjarfulltrúinn segir þær meira og minna ónýtar. Bæjarstjóri Árborgar segir að íbúðirnar sextán verði eitthvað í notkun áfram en muni þó á endanum víkja fyrir nýjum byggingum.
Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Árborgar, sem situr þar í minnihluta. Hún hefur áhyggjur af stöðu húsnæðismála hjá eldri borgurum á Grænumarkarsvæðinu svonefnda á Selfossi.

RÚV / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
„Það er svolítið um lausar íbúðir hjá okkur í Grænumörkinni, Grænumörk 1 og 3 en staðan er einfaldlega þannig að þessar íbúðir eru ekki ásættanlegar fyrir eldra fólk lengur og við þurfum að fara að horfa lengra og sjá hvað við ætlum að gera og byggja upp íbúðir fyrir eldra fólk í Árborg,” segir Ellý.
Hvað eru margar lausar íbúðir í dag?
„Samkvæmt því, sem ég síðast vissi þá eru sjö íbúðir lausar en þeim verður ekki úthlutað eins og er út af því að þær eru í rauninni ekki ásættanlegar fyrir íbúa að búa í,” segir Ellý.
Þannig að þær eru hálfónýtar eða hvað?
„Já í rauninni, þær eru þannig að við viljum ekki að fólk sé að búa þarna, við þurfum að fara að horfa til framtíðar með því að byggja upp nýjar íbúðir,” segir Ellý.
Samkvæmt upplýsingum frá Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra í Árborg, verða eitthvað af íbúðunum 16 í Grænumörk eitt og þrjú í notkun áfram en á endanum munu þær víkja fyrir nýjum byggingum. Nýtt deiliskipulag sé í vinnslu og markmiðið sé að auka þjónustu við íbúa og bjóða upp á fjölbreytt framboð íbúða.
Heimild: Ruv.is












