
Hluta af framkvæmdum og fjárfestingum sveitarfélagsins Norðurþings sem fyrirhugaðar voru á þessu ári hefur verið frestað til næsta árs. Ákvörðun þess efnis var tekin á sveitarstjórnarfundi í vikunni en tillagan hafði áður verið samþykkt í byggðarráði. Fimm sveitarstjórnarfulltrúar greiddu atkvæði með ákvörðuninni en þrír gegn henni. Einn sat hjá.
Ástæðan er bág fjárhagsstaða sveitarfélagsins en kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka fór í rekstrarstöðvun á síðasta ári og hefur Norðurþing orðið af miklum tekjum vegna þess.
Gripið hefur verið til hagræðingaraðgerða að upphæð 120 milljónir króna og áformuð er 130 milljóna króna hagræðing til viðbótar. Hefur þessi hagræðing meðal annars náð til Sundlaugarinnar á Húsavík en afgreiðslutími hennar hefur verið skertur.
Heimild: Mbl.is











