Home Fréttir Í fréttum 250 metra bílalest ferjar vindmyllur á næstum hverri nóttu í níu vikur

250 metra bílalest ferjar vindmyllur á næstum hverri nóttu í níu vikur

123
0
Það verður erfitt að mæta bílalestinni sem ferjar vindmyllurnar. Breiðasti íhluturinn er fimm metrar á breidd. Aðsend – Landsvirkjun

Einhverjir mestu þungaflutningar sem ráðist hefur verið í á Íslandi fara fram á níu vikna tímabili í vor, þegar flutningur á efnivið í vindmyllur fyrir Vaðölduvirkjun fer fram. Farnar verða um 350 ferðir – að nóttu til – á um 30 kílómetra hraða.

Fjórtán vindmyllur verða fluttar í pörtum frá Þorlákshöfn í Vaðölduvirkjun í vor. Flutningarnir taka um níu vikur, en ekið verður á nóttunni til að lágmarka áhrif á umferð. Meðalhraði flutningabílanna verður um 30 kílómetrar á klukkustund.

Í virkjuninni verða alls 28 vindmyllur. Helmingurinn verður fluttur til landsins á þessu ári og hinn helmingur á því næsta. „Við erum að fara að flytja 14 vindmyllur frá Þorlákshöfn upp í Vaðölduver í gegnum öll þessi sveitarfélög sem eru á leiðinni,“ segir Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri Vaðölduvers. Hann segir að strax í byrjun sumars verði byrjað að setja saman fyrstu vindmyllurnar, sem geti þá byrjað að framleiða rafmagn síðla sumars.

250 metra löng bílalest

Flutningarnir taka um níu vikur. Alls verða farnar upp undir fjögur hundruð ferðir. Þar sem að vindmyllurnar eru fluttar í pörtum getur hver bílalest orðið allt að 50 metra löng, og fer á um 30 kílómetra hraða.

Spaðarnir eru stærstir, eða um 68 metrar að lengd hver. Vélarhúsið er þyngst og breiðast, um sjötíu tonn og fimm metrar á breidd.

Lögreglan á Suðurlandi fylgir flutningalestinni. „Það er lögreglubifreið sem keyrir á undan og gefur fólki merki um að fara út í kant og þá verður fólk bara að bíða þar rétt á meðan að meðan flutningurinn fer fram hjá,“ segir Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. „Þeir sem lenda fyrir aftan þurfa bara að vera þolinmóðir og ekki að reyna framúrakstur eða annað slíkt.“

Flutningarnir fara fram í maí og júní, frá miðnætti og fram eftir morgni, fimm til sex sinnum í viku.

Um 130 km leið

Ekið verður frá Þorlákshöfn, eftir Eyrarbakkavegi, Votmúlavegi, Gaulverjabæjarvegi og inn á hringveginn á Suðurlandsveg, og frá Landvegamótum upp Landveginn að Vaðöldu.

Kort sem sýnir akstursleið flutningalestarinnar.
RÚV / Grafík

„Þetta eru bæði mjög langir flutningar og þungir og sumir vegkaflar eru svolítið krítískir hvað varðar burðarþol vega og jafnvel brýr, burðarþol þeirra,“ segir Svanur Bjarnason, verkfræðingur hjá Vegagerðinni.

En hvernig fara þessir þungaflutningar með vegina? „Það verður bara fylgst vel með því og ef einhverjar skemmdir verða þá er það Landsvirkjun sem mun bæta það,“ segir Svanur.

Heimild: Ruv.is