Betri samgöngur ohf. og Veitur ohf. óska tilboða í gerð rammasamnings um hönnun Borgarlínu.
Um er að ræða samningskaup að undangenginni útboðsauglýsingu samkvæmt tilskipun 2014/25/ESB og reglugerð nr. 340/2017.
Ferlið hefst með forvali, þar sem sex umsækjendur verða valdir til samningaviðræðna og til að leggja fram upphafstilboð. Í kjölfar samningaviðræðna gefst bjóðendum færi á að leggja fram lokatilboð.
Kaupendur hyggjast gera rammasamning við þrjá bjóðendur að loknum biðtíma.
| Útboðsgögn afhent: | 24.03.2026 kl. 16:00 |
| Skilafrestur | 27.04.2026 kl. 14:00 |
| Opnun tilboða: | 27.04.2026 kl. 14:00 |












