Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar

Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar

20
0
Ætlunin er að Keldnalandið skili 50 milljörðum króna til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. mbl.is/Ómar

„Samgöngusáttmálinn er sameiginlegt verkefni ríkis og sex sveitarfélaga og er fjármagnaður með framlögum þeirra allra.

Um 20% af fjármögnun framkvæmda sáttmálans til 2040 á að koma af samgönguáætlun ríkisins, verkefnin eru því ekki hefðbundin samgönguáætlunarverkefni og því fjallað um þau á annan hátt,“ segir Þorsteinn R. Hermannsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Betri samgangna, í samtali við Morgunblaðið.

Hann vísar því á bug að framkvæmdir sáttmálans séu ekki fjármagnaðar, eins og fram kom í samtali við Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann í Morgunblaðinu sl. föstudag.

Heimild: Mbl.is