Home Fréttir Í fréttum 14.04.2026 Reykjavíkurborg. Húsnæði fyrir leikskóla, markaðskönnun

14.04.2026 Reykjavíkurborg. Húsnæði fyrir leikskóla, markaðskönnun

27
0
Mynd: Fréttablaðið/Eyþór

Húsnæði fyrir leikskóla

Reykjavíkurborg óskar eftir að taka á leigu húsnæði fyrir leikskóla.

Leitað er eftir 600 – 2.000 m2 húsnæði og 1.200 – 8.000 m2 aðliggjandi útisvæði til langtímaleigu.

Um markaðskönnun er að ræða sem felur ekki í sér loforð um viðskipti.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið skulu sendar rafrænt í gegnum útboðskerfi Reykjavíkurborgar og verða svör birt þar.

Gögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu, eigi síðar en 14. apríl 2026 kl. 10:00.

Nánari upplýsingar og skilyrði eru að finna á útboðsvef Reykjavíkurborgar https://utbod.reykjavik.is

Óskað er eftir eftirfarandi upplýsingar (sjá excel skráningarskjal):

  • Mögulegur afhendingartími húsnæðis,
    • Staðsetning, stærð og aldur húsnæðis,
    • Upplýsingar um lóðarstærð og aðgengi að húsnæði og útisvæði,
    • Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu,
    • Leiguverð pr./m2 séreignar og heildarleiguverð,
    • Húsgjöld ef við á,
    • Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða,
    • Tilvísun í gildandi aðalskipulag.

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að óska eftir því að leigusali leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila, um almennt ástand húsnæðis t.a.m. að húsnæði sé laust við rakaskemmdir. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning.