Home Fréttir Í fréttum 29.04.2026 Stækkun Grunnskóla Þorlákshafnar, Egilsbraut 35

29.04.2026 Stækkun Grunnskóla Þorlákshafnar, Egilsbraut 35

443
0

Um er að ræða viðbyggingu við núverandi grunnskóla í Þorlákshöfn. Byggingin er á tveimur hæðum með tæknirými á þaki. Brúttóflatarmál er 1.502,9 m² og brúttórúmmál 6.660,7 m³.

Í byggingunni verða kennslustofur, sérgreinastofur (smíði, textíll, myndmennt og náttúrufræði), bókasafn, frístund, fjölnotarými, stoðrými, geymslur og salerni.

Gert er ráð fyrir lyftu og fullu aðgengi. Húsið er hannað fyrir allt að 150 nemendur.

Burðarkerfi er að meginstefnu til staðsteypt steinsteypa. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir loftræstri klæðningu. Þök eru einangruð og vatnsvarin.

Verkið skal uppfylla kröfur byggingareglugerðar, staðla og hönnunargagna, m.a. um brunavarnir, aðgengi, hljóðvist og innivist.

Útboðsgögn afhent: 23.03.2026 kl. 13:00
Skilafrestur 29.04.2026 kl. 11:00
Opnun tilboða: 29.04.2026 kl. 11:00

Sjá frekar.