Home Fréttir Í fréttum Strandabyggð : 500 m.kr. í skóla á Hólmavík

Strandabyggð : 500 m.kr. í skóla á Hólmavík

288
0
Grunnskólinn á Hólmavík. Mynd: BB.is

Fram kemur í pistli á vefsíðu Strandabyggðar að undanfarin þrjú ár eða svo, hafi sveitarfélagið fjárfest í menntastofnunum sveitarfélagsins, grunnskólanum og leikskólanum, fyrir yfir 500 milljónir króna. Í nóvember 2022 hafi greinst mygla í húsnæði grunnskólans.

Ráðast þurfti í mikla endurnýjun og uppbyggingu.  Ákveðið var að nýta yngri hlutann því hann var ekki ónýtur. Leikskólalóðin var sömuleiðis verkefni sem varð að vinna, segir í pistlinum.

„Fyrrverandi sveitarstjórn hafði reynt að fá verkið unnið, en án árangurs.  Núverandi sveitarstjórn lauk því og þrátt fyrir talsverðan ófyrirséðan kostnað.“

Mikil innviðaskuld

Í pistlinum kemur fram að innviðaskuldin í sveitarfélaginu sé mikil. Hún sé slík, að það þyrfti að fjárfesta fyrir 150-200 milljónir kr. á ári í amk. 10 ár. Nefnd eru nokku dæmi með gróflega áætlaðan kostnað við uppbyggingu:

Þróunarsetrið:100-120 m.kr., félagsheimilið: 100-200 m.kr., ráðhúsið: 50 m. kr., götur og gangstéttir:100 m.kr. , hafnarsvæðið: 70-80 m.kr. , innviðauppbygging í Brandskjólum: 350 m.kr., innviðauppbygging á Jakobínutúni (Hótelbygging ofl.): 100+ m.kr.

Samtals eru þetta framkvæmdir upp á 870 -1.000 m.kr.

Heimild: BB.is