Home Fréttir Í fréttum 15.04.2026 Yfir­lagn­ir á Suður­svæði 2026, Malbik Reykja­nes

15.04.2026 Yfir­lagn­ir á Suður­svæði 2026, Malbik Reykja­nes

41
0
Mynd: mbl.is/​Hari

Vegagerðin býður  út útlögn malbiks á Suðursvæði, Reykjanes 2026 2026. Allar framkvæmdir í þessu útboði eru á Reykjanesi.

Verkið felst í endurnýjun slitlags á völdum köflum á stofnvegakerfi Vegagerðarinnar á Reykjanesi. Í þessu útboði teljast þeir vegkaflar sem eru vestar en Krýsuvíkurvegur (42-01) að Krýsuvíkur veg meðtöldum, norðan og vestan við gatnamót Krýsuvíkurvegar (42) og Suðurstrandavegar (427).

Helstu magntölur eru áætlaðar:

  • Yfirlagnir 41.600 m2
  • Fræsing 41.600 m2
  • Hjólfarafyllingar/afrétting 5.000 m2
  • Vegmössun, deililínur 3.800 m
  • Yfirborðsmerkingar (merkingarlengd): 7.000 m
  • Hvinrendur 2.400 m

Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 17. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 15. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Athygli bjóðenda er vakin á því að talsverðar breytingar eru á útboðsgögnunum frá fyrra ári.