Fjögurra íbúða raðhús við Bláargerði á Egilsstöðum og tíu íbúða tveggja hæða fjölbýlishús í Selbrún í Fellabæ bætast við fasteignamarkaðinn á Héraði strax í næsta mánuði en þær íbúðir munu stytta langa biðlista eftir húsnæði á svæðinu töluvert.
Það er verktakafyrirtækið Búðingar ehf. sem byggir húsin og framkvæmdir á báðum stöðum vel á undan áætlun sem er alla jafna harla óvenjulegt á byggingarmarkaðnum í landinu.
Allar eignirnar eru byggðar fyrir íbúðafélagið Brák hses. sem er húsnæðissjálfseignarstofnun í eigu 31 sveitarfélags. Markmiðið með þeirri stofnun að ná fram stærðarhagkvæmni sem ekki er hægt að ná með litlum sjálfseignarstofnunum með fáar eignir á hendi og þannig bjóða tekju- og eignaminni ungum fjölskyldum tryggt húsnæðisöryggi.
Róbert Óskar Sigurvaldason, eigandi Búðinga, segir verið að innrétta margar íbúðanna um þessar mundir og þær verði að fullu tilbúnar í aprílmánuði. Þá verði aðeins eftir að klára lóðirnar að fullu en það taki ekki langan tíma.
Búðingar ehf. hyggja á enn frekari uppbyggingu í Bláargerðinu því í síðustu viku tók umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings fyrir umsókn þeirra um að leyfi til að byggja annað fjögurra íbúða raðhús á tveimur einbýlishúsalóðum í þeirri götu. Ráðið tók vel í erindið en kynna þarf breytinguna fyrir fasteignaeigendum í götunni áður en afstaða verður tekin.
Heimild: Austurfrett.is












