Home Fréttir Í fréttum 10.04.2026 Bryggjuhverfi vestur – Yfirborðsfrágangur

10.04.2026 Bryggjuhverfi vestur – Yfirborðsfrágangur

54
0
Bryggjuhverfi vestur. Mynd: Mbl.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Bryggjuhverfi vestur – Yfirborðsfrágangur, útboð nr. 16284.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið er í aðalatriðum fólgið í því að ganga frá yfirborði götu og gangstéttar með malbiki og hellulögn. Um er að ræða eftirfarandi framkvæmdir: Gatnagerð: Afrétta núv. styrktarlag, leggja burðarlag og neðra malbikslag. Steypa kantstein og helluleggja skv. teikningum. Stígagerð: Afrétta núv. styrktarlag, leggja burðarlag og malbikslag auk frágangs hliðarsvæða. Fráveita: Frágangur og tenging svelgja í regnbeðum. Götulýsing: Leggja skal strengi og setja upp götulýsingu skv. teikningum.

Helstu magntölur:

Burðarlag 750 m3

Malbik 3.500 m2

Hellulögn 800 m2

Regnbeð 6 stk.

Uppsetning götulýsingastólpa: 25 stk.

Strengir götulýsingar: 700 m

Áætluð lok framkvæmdatíma: 10. september 2026.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 11: þann 20. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. apríl 2026.