Garðabær, auglýsir eftir tilboðum í verkið:
Búsetukjarni, Haustbraut 2, jarðvinna og lagnir
Verkið felur í sér girðingu vinnusvæðis og jarðvinnu fyrir 600 m² búsetukjarna auk lagningu heimæðalagna og tenging við stofnlagnir. Aðgengi að lóðinni er um hringtorg á Vetrarbraut.
Helstu magntölur eru:
- Girðing 240 m
- Uppúrtekt úr lóð 2300 m3
- Fyllingar 900 m3
- Fráveitulagnir 60 m
Útboðið er almennt opið útboð.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða aðgengileg á
https://gardabaer.utbodsgatt.is/haustbraut2-jardvinna
Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins eigi síðar en 30. mars 2026, kl. 11:00.












