Útboð vegna jarðvegsvinnu er fyrirhugað á næstu vikum vegna byggingar nýs öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni og hefjast framkvæmdir síðan. Farið var yfir stöðu fangelsismála í sérstakri umræðu á Alþingi í vikunni.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra sagði undirbúning að fangelsinu ganga vel.
Fangelsið verður með 128 afplánunarrými og mun bæta aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum og efla öryggi að sögn dómsmálaráðherra.
Heimild: Ruv.is












