Home Fréttir Í fréttum Byrja niðurrif á kísilverinu í Helguvík

Byrja niðurrif á kísilverinu í Helguvík

169
0
Áætlað er að niðurrif klárist í sumar. – Þorgils Jónsson

Reykjanesbær keypti í febrúar hluta lóðar kísilversins í Helguvík og vonast til þess að niðurrif klárist í sumar. Ekki liggur fyrir hvað kemur í staðinn en forseti bæjarstjórnar segir að Reykjanesbær hafi lokað á frekari þungaiðnað á lóðinni.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar vonast til þess að geta auglýst hluta af lóð kísilversins í Helguvík til úthlutunar í sumar. Þróunarfélagið Reykjanes Investment ehf. keypti mannvirkið og lóðina á síðasta ári og Reykjanesbær keypti hluta lóðarinnar í febrúar.

Niðurrif á hluta Reykjanesbæjar hófst í dag. Ekki er ljóst hver kostnaðurinn verður fyrir bæinn.

Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, reiknar með að niðurrif klárist í sumar.

„Þá getum við farið að skipuleggja lóðina til framtíðarúthlutunar. Það eru aðilar áhugasamir um að koma til okkar, enda erum við með frábæra staðsetningu í Helguvík, nálægt höfninni, alþjóðaflugvelli, þannig að landsvæðið vissulega áhugavert að þróa en við höfum alveg allavega bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ lokað á frekari þungaiðnað,“ segir Guðný.

Lokað var á framleiðslu kísilversins í Helguvík árið 2017 eftir innan við ár í starfsemi.
RÚV

Hún segir heldur ekki liggja fyrir hvað verði gert á þeim hluta sem tilheyrir Reykjanes Investment.

Heimild: Ruv.is