Rangárþing eystra óskar eftir tilboðum í : „Skógar 2026 Rútustæði“
Verkið felur í sér gerð á bílastæðum með malbiki og hellulögnum.
Helstu magntölur eru:
- Malbik: 5340 m²
- Hellur: 200m²
- Þökulögn: 3500 m²
- Styrktarlag: 5356 m³
- Gröftur: 600 m³
- Ræsi: 18 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með föstudeginum 13. mars 2026. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Ólafur Rúnarsson Rangárþingi eysta með tölvupósti í netfangið olirunars@hvolsvollur.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur fyrir kl. 13.00 þriðjudaginn 7. apríl 2026 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.












