Home Fréttir Í fréttum Unnið við lúxushótel á ný

Unnið við lúxushótel á ný

43
0
Verktakar eru nú að störfum við Höfða Lodge við Grenivík. mbl.is/Þorgeir

Verktakar eru nú að störfum við lúxushótelið Höfða Lodge við Grenivík. Greint var frá því á dögunum að breski auðmaðurinn Russ DeLeon hefði eignast hótelið að fullu eftir að Íslendingar seldu hlut sinn í félaginu. Menn á hans vegum eru væntanlegir til landsins í næstu viku og þá má búast við að framkvæmdir fari á fullt á ný.

„Herbergin komu tilbúin en það er eftir vinna við sameiginlegu rýmin, eldhús, anddyri og fleira. Þá á eftir að koma upp kerfum og vinna að tengingum. Ég tel að það séu svona 10-20% af verkinu eftir,“ segir Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.

„Þetta er stór og mikil bygging og allt tekur sinn tíma. Ég held þó að planið sé að klára á þessu ári, hvort sem þeir ná að opna í haust eða síðar,“ segir hann enn fremur.

Miklar tafir síðustu ár

Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hafa miklar tafir verið við byggingu hótelsins, en upphaflega var stefnt að opnun árið 2023. Kostnaður fór langt fram úr áætlunum fyrri eigenda.

Hótelið er byggt á Þengilhöfða skammt frá Grenivík. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn frá herbergjum hótelsins, sem verður 6.000 fermetrar að flatarmáli, með 42 herbergjum og 28 starfsmannaherbergjum.

„Staðurinn er alveg magnaður. Ég hef farið upp eftir með fólki frá mörgum löndum, á öllum tímum árs og í öllum veðrum, og það verða allir jafn dolfallnir yfir staðnum. Ég held að þetta hótel geti orðið vinsælt,“ segir sveitarstjórinn.

Heimild: Mbl.is