HS Veitur hf. óska eftir tilboðum í verkið „VF030206703 – KAP-A Bygging“. Ný smíði aðveitustöðvar Kaplahrauni 24, í Hafnarfirði.
Verkið felur í sér jarðvinnu, uppsteypu og byggingu tveggja fullbúinna húsa að utan sem innan ásamt frágangi lóðar og umhverfis.
Um er að ræða spennabyggingu með tveimur spennabásum 138 m² að flatarmáli ásamt rofasalsbyggingu með jarðhæð og kjallara samtals 347 m² að flatarmáli.
| Útboðsgögn afhent: | 11.03.2026 kl. 13:00 |
| Skilafrestur | 15.04.2026 kl. 11:59 |
| Opnun tilboða: | 15.04.2026 kl. 12:00 |
Verktaki skal skila fullfrágenginni byggingu, tilbúinni til notkunar í fullu samræmi við ákvæði útboðsgagna sem aðgengileg eru á utbod.hsveitur.is












