Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 27.03.2026 Knatthús Hauka – 2. áfangi, Innanhúsfrágangur

27.03.2026 Knatthús Hauka – 2. áfangi, Innanhúsfrágangur

13
0
Mynd/Haukar

Hafnarfjarðabær, auglýsir eftir tilboðum í verkið:

KNATTHÚS HAUKA – 2. ÁFANGI, INNANHÚSFRÁGANGUR

Verkið felur í sér innanhúsfrágang í þjónustubyggingu knattsalar við Ásvelli 1 í Hafnarfirði. Í þjónustubyggingunni er forsalur sem þegar hefur verið tekinn í notkun, en gólfið og veggir á salernum verða flísalögð .

Annar hluti þjónustubyggingarinnar sem nú er ófrágenginn að innan skal fullkláraður. Um er að ræða frágang búningsherbergja fyrir iðkendur, kennara, dómara og starfsfólk, ásamt áhaldageymslu, ræstingu og öðrum rýmum.

  • Ófrágenginn hluti þjónustubyggingarinnar er 536 m² og
  • Forsalurinn er 200 m².

Útboðið er almennt opið útboð.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða aðgengileg á https://hafnarfjordur.utbodsgatt.is/knatthus-hauka-innanhusfragangur-2026

Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins eigi síðar en 27. mars 2026, kl. 11:00.