Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar

Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar

40
0
Niðurrif á Fannborgarreit er hafið. mbl.is/Ólafur Árdal

Gert er ráð fyrir 364 íbúðum, verslun og þjónustu á jarðhæðum og bílakjallara á tveimur hæðum með 507 bílastæðum á Fannborgarreit og Traðarreit-vestri, samtals um þrjúþúsund fermetrum í nýjum miðbæ í Kópavogi.

Niðurrif á Fannborgarreit er hafið eftir að kæru húsfélagsins í Hamraborg 10 var vísað frá. Húsfélagið sagði framkvæmdina ekki standast lög sem kveða á um að bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk skuli ekki vera í meira en 25 metra fjarlægð frá aðalinngangi bygginga.

Búið er að veita niðurrifsleyfi fyrir Fannborg 2 og gera má ráð fyrir að áform um niðurrif á Fannborg 4 og 6 fari inn á afgreiðslufund byggingarfulltrúa einhvern tímann á næstu fjórum vikum, að því er fram kemur í skriflegu svari Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi, við fyrirspurn mbl.is.

Svæðið tilbúð að fullu vorið 2030

Samkvæmt framkvæmdaáætlun er gert ráð fyrir að niðurrifi ljúki um miðjan maí og að jarðvinna hefjist í lok maí. Þá er gert ráð fyrir að fyrsti fasi uppbyggingar hefjist um miðjan júlí.

Áætlað er að uppbyggingu á Fannborgarreit verði lokið í lok árs 2029 en á svæðinu í heild, að Traðarreit-vestri meðtöldum, verði uppbyggingu að fullu lokið í maí 2030.

Eigandi Fannborgarreits er Árkór ehf. sem aftur er í eigu Guðna Rafns Eiríkssonar, Gísla Steinars Gíslasonar og Jóns Helga Sen Erlendssonar. Mannverk sér um framkvæmdir á Fannborgarreit en Sváfnir Gíslason, stjórnarformaður Árkórs, er framkvæmdastjóri fjármála hjá Mannverki.

Eigandi Traðarreits-vestri er Jáverk ehf. og sér félagið einnig um framkvæmdir á reitnum.

Bílastæðamál leyst í hverjum fasa fyrir sig

Ásdís segir bílastæði á svæðinu staðsett á bæjarlandi og að þeim verði fundinn nýr staður eftir því sem verkefnið þróast. Bílastæðum fyrir hreyfihamlaða á svæðinu verði fundinn staður í sambærilegum fjarlægðum og nú er.

Einhver stæði verða í 25 metra fjarlægð eða styttri en önnur í aðeins meiri fjarlægð, eins og raunin sé í dag á svæðinu.

Í svari sínu við fyrirspurn mbl.is segir bæjarstjórinn að Kópavogsbæ sé skylt að fara eftir gildandi lögum og reglum og að það sama gildi um framkvæmdaraðila. Ásdís segir að fyrir liggi ítarleg aðkomuáætlun þar sem aðkoma og bílastæðamál séu leyst í hverjum framkvæmdarfasa fyrir sig.

Þá vill hún ítreka að um framkvæmdaáætlun sé að ræða sem geti tekið einhverjum breytingum. Þó sé lögð áhersla á að um óverulegar breytingar á framkvæmdaráætlun verði þá að ræða.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi. mbl.is/María Matthíasdóttir

„Aðaláherslan er að þeir fasar sem valda hvað mestu raski taki eins stuttan tíma og mögulegt er. Við munum reyna eftir fremsta megni að lágmarka allt rask gagnvart íbúum meðan á framkvæmdum stendur.“

Ásdís segir mikilvægt að hafa í huga að sú uppbygging sem framundan er verði mikil upplyfting fyrir svæðið – ekki síst þá íbúa sem þar búa.

„Kópavogsbúar hafa lengið beðið eftir miðbæ með fjölbreyttri verslun og þjónustu og loksins er sá miðbær í mótun og verður tilbúinn á árinu 2030.“