Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Sorpmóttaka Hofsósi – Frágangur 2026.
Í verkinu felst frágangur sorpmóttökusvæðis á Hofsósi, m.a. útvegun og uppsetning forsteyptra stoðveggjaeininga, útvegun og uppsetning aðstöðuhúss, fráveitulagnir, raflagnir og lýsing, jöfnun svæðisins með unnu malarefni og malbikun á hluta þess.
Jarðvegsskiptum á svæðinu er lokið og uppsetningu girðingar með aksturshliðum sömuleiðis. Sérstakar kröfur eru gerðar um hæfni og reynslu bjóðanda
Helstu magntölur:
- Malbik: 960 m²
- Steinsteypa: 40 m³
- Forsteyptar einingar: 33 stk.
- Fráveitulagnir: 290 m
- Ljósastaurar: 13 stk.
- Aðstöðuhús: 1 heild
Opnunardagur tilboða er föstudaginn 10. apríl 2026, kl. 13:00, hjá Stoð verkfræðistofu, Aðalgötu 21, 550 Sauðárkróki.
Verktími: Upphaf framkvæmda 18. maí 2026 og skal verkinu í heild lokið eigi síðar en 15. september 2026.
Útboðsgögn: Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 11. mars 2026. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is.












