Vinna hófst í vikunni við niðurrif þriggja einbýlishúsa í Grindavíkurbæ sem urðu fyrir altjóni eftir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga.
Til stendur að rífa niður alls um 40 hús í bænum.
Niðurrif þriggja einbýlishúsa: Mánagerðis 2, Mánagötu 17 og Mánagötu 19 var boðið út í upphafi árs og var verktakafyrirtækið Jón og Margeir fengið til starfa af þeim níu verktökum sem metnir voru hæfir til verksins.

„Eitthvað gæti dregist fram á næsta ár“
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir niðurrifið hafa gengið vel. Veðrið hafi truflað eilítið á tímabili í gær en að allt sé nú á áætlun.
Byrjað verður á að rífa niður einbýlishúsin þrjú en svo verður verkefnið tekið í nokkrum hollum þar sem nokkur hús verða tekin í einu og boðin út, að sögn Fannars.
„Það er gert ráð fyrir því að nota vorið, sumarið og vel fram á haust og ljúka sem mestu fyrir veturinn. Eitthvað gæti dregist fram á næsta ár.“

Hópið mögulega gert að safni
Um er að ræða íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði sem verða rifin. Einnig stóð upphaflega til að rífa knatthús bæjarins, Hópið, en fallið hefur verið frá þeirri hugmynd og er til skoðunar að gera knatthúsið að safni. Mikil sprunga er innan knatthússins eftir jarðhræringarnar.
Segir Fannar mannvirkið vera merkilegan og sorglegan minnisvarða um hamfarirnar og að betra sé því að bíða með niðurrif þess.

Kostnaður liggur ekki fyrir
Aðspurður segir hann kostnað fyrstu atrennu niðurrifsins ekki liggja fyrir fyrr en búið er að flokka það efni sem kemur úr niðurrifinu.
„Það á eftir að finna út úr því hvað þetta kemur til með að kosta en það verður tekið saman í lok verkefnisins hverju sinni.“




Heimild: Mbl.is












