Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á vegum á Norðursvæði árið 2026. Verkefnið felst í að leggja einfalt lag af klæðingu með þjálbiki yfir eldra slitlag.
Helstu magntölur eru:
- Klæðing, útlögn með þjálbiki 503.400 m2
- Klæðing, kíling, útlögn 40.000 m2
- Klæðing, flutningur steinefnis 243.700 m3 * km
- Klæðing, flutningur bindi- og viðloðunarefnis 60.700 m3 * km
- Formerkingar, línur 73.800 m
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 9. mars 2026.
Tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.












