Home Fréttir Í fréttum Sá handtekni starfsmaður verktaka

Sá handtekni starfsmaður verktaka

23
0
Tveir verktakar starfa við snjómokstur fyrir Vegagerðina á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ökumaður snjóruðningstækisins sem handtekinn var í gær á gatnamótum Bústaðavegar og Skógarhlíðar, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, var starfsmaður verktaka sem starfar fyrir Vegagerðina.

Vegagerðin er ekki með nein snjóruðningstæki á sínum snærum en býður allan mokstur út. Á höfuðborgarsvæðinu starfa tveir verktakar fyrir Vegagerðina.

Vegagerðin mun ræða við verktakann

Þetta segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskipta hjá Vegagerðinni, í samtali við mbl.is.

„Við auðvitað lítum þetta mjög alvarlegum augum og munum fara yfir þetta með verktakanum, en það er hann sem tekur á bílstjóranum.“

Heimild: Mbl.is