
Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að hefja útboðsferli vegna fornleifarannsókna við Tjarnargötu, milli Kirkjustrætis og Vonarstrætis. Þess er vænst að þarna finnist merkir munir frá landnámstíð, sem nú eru varðveittir undir malbiki.
Þetta svæði tilheyrir Kvosinni, elstu byggð Reykjavíkur. Margar fornleifarannsóknir hafa verið gerðar á svæðinu á undanförnum áratugum. Flestar eru þær tilkomnar vegna framkvæmda. Vegna þeirra hafa minjar frá upphafi byggðar skemmst.
Gert er ráð fyrir að hefja framkvæmdir á þessu ári og er stefnt að því að þær taki fimm mánuði en það er háð því hvaða munir kunni að finnast við uppgröftinn.
Heimild: Mbl.is











