
Notre Dame-dómkirkjan í París er sem ný eftir viðamiklar endurbætur. Þeim er þó ekki lokið og eru enn stillansar við hluta kirkjunnar.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu 9. nóvember 2024 að klukkur Notre Dame hefðu ómað daginn áður yfir borginni í fyrsta skipti frá brunanum mikla 15. apríl 2019. Kirkjan var opnuð 7. desember 2024 eftir endurbætur og er sem ný.

Frakkar kappkostuðu að gera endurbygginguna sem best úr garði og hefur kostnaður við verkið verið metinn á um og yfir 100 milljarða króna.
Heimild: Mbl.is











