Home Fréttir Í fréttum 08.04.2026 Hellnahraun 4. áfangi, gatnagerð og veitur

08.04.2026 Hellnahraun 4. áfangi, gatnagerð og veitur

52
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið:  Hellnahraun 4. áfangi – Gatnagerð og veitulagnir (fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir).

Hellnahraun 4. áfangi er nýjasta iðnaðarsvæðið í Hafnarfirði og afmarkast af fyrirhuguðum ofanbyggðavegi í suðri, iðnaðarsvæði Hellnahrauns 3.áfanga í austri, Akstursíþrótta- og skotæfingasvæði í norðri og fyrirhugaðri tengibraut í vestri.

Helstu stærðir og magntölur fyrir hverfið eru eftirfarandi:

  • Lengd gatna 900 m
  • Lengd stíga 120 m
  • Uppúrtekt úr götum og stígum 000 m3
  • Losun á klöpp í götu- og stígastæði 200 m3
  • Losun á klöpp í skurðstæði 700 m3
  • Styrktarlag 000 m3
  • Fyllingar 800 m3
  • Malbik 300 m2
  • Fráveitulagnir 100 m
  • Neysluvatnslagnir 510 m
  • Skurðir veitna 260 m

Verkinu er skipt upp í þrjá verkhluta með skiladagsetningum. Verklok eru 1. nóvember 2027.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á útboðsvef VSB verkfræðistofu (https://vsb.ajoursystem.net/tender).

Útboðsgögn afhent: 08.03.2026 kl. 00:01
Skilafrestur 08.04.2026 kl. 10:55
Opnun tilboða: 08.04.2026 kl. 11:00

Tilboð verða opnuð rafrænt miðvikudaginn 8. apríl 2026.

Sjá frekar.