
Skriður er mögulega að komast á uppbyggingu á enn einum þéttingarreitnum í Vesturbæ Reykjavíkur, svokölluðum Landhelgisgæslureit.
Umræddur reitur er á mótum Seljavegar, Ánanausta og Holtsgötu. Í næsta nágrenni hefur verið mikil uppbygging á undanförnum árum: Í Vesturvin á Héðinsreit og á BYKO-reit við Hringbraut (Grandatorg) hafa verið byggðar mörg hundruð íbúðir. Í Vesturbugt við Slippinn mun fljótlega hefjast uppbygging.
Fram kemur í bréfi Andrúms arkitekta til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur að Félagsstofnun stúdenta eigi í viðræðum við fjármálaráðuneytið (lóðarhafa) um kaup á húsinu Seljavegi 32 og sömuleiðis gamla Sóttvarnarhúsinu sem er á sömu lóð. Jafnframt hyggst Félagsstofnun festa kaup á lóðinni sjálfri og hefja þar uppbyggingu.
Heimild: Mbl.is











