Home Fréttir Í fréttum Keypt 185 íbúðir á grund­velli kaupréttar

Keypt 185 íbúðir á grund­velli kaupréttar

140
0
Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða. Ljósmynd: Aðsend mynd

Ellefu íbúðir sem Félagsbústaðir keyptu á grundvelli kaupréttar í nýbyggingum í fyrra kostuðu undir 40 milljónir króna.

Félagsbústaðir, dótturfélag Reykjavíkurborgar, keypti 185 íbúðir frá árinu 2017 til loka árs 2025 á grundvelli 5% kaupréttar í nýbyggingum. Þetta kemur fram í svari Félagsbústaða við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Heildarkaupverð þessara íbúða nam 6,93 milljörðum króna eða sem samsvarar 590 þúsund krónum á fermetrann.

Fái kauprétti að íbúðum langt undir markaðsvirði

Félagsbústaðir hafa kauprétt fyrir allt að 5% íbúða fyrir félagslegt leiguhúsnæði á föstu verði bundið byggingarvísitölu. Í fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins segir að þetta fyrirkomulag tryggi félaginu leiguíbúðir sem eru langt undir markaðsvirði.

Félagsbústaðir segja að engin af þeim íbúðum sem keyptar hafa verið á ofangreindum grundvelli hafi verið seld.

Alls keyptu Félagsbústaðir 43 íbúðir á grundvelli kaupréttar í nýbyggingum á árinu 2025. Meðalverð þeirra nam 52,4 milljónum króna. Ellefu þeirra kostuðu innan við 40 milljónir króna og sú ódýrasta kostaði 26,4 milljónir króna.

Ekki er tekið fram í sundurliðun á íbúðakaupum félagsins hvað hver og ein íbúð er stór. Sé miðað við meðaltalið á árunum 2017-2025 er hin meðalíbúð sem félagið keypti á grundvelli kaupréttar á þessum árum 63,5 fermetrar að stærð.

Í svarinu kemur einnig fram að Félagsbústaðir hafi frá árinu 2019 til ársloka 2025 keypt 163 íbúðir af Bjargi íbúðafélagi í samræmi við samninga milli aðila um kaup á 20% íbúða í nýbyggingarverkefnum.

Heildarkaupverð þeirra íbúða hafi verið rúmlega 5 milljarðar króna og meðalverð á fermetrann um 508 þúsund krónur.

Heimild: Vb.is