
Niðurrif er hafið á Fannborg 2 eftir að kæru húsfélagsins í Hamraborg 10 var vísað frá. Húsfélagið hafði kært ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogs um að samþykkja umsókn um niðurrifið.
Greint er frá þessu í úrskurði umhverfis- og auðlindanefndar frá 20. febrúar. Til stendur að byggja fjölbýlishús á lóðum Fannborgar 2, 4 og 6.
Húsfélagið sagði framkvæmdina ekki standast lög sem kveði á um að bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk skuli ekki vera í meira en 25 metra fjarlægð frá aðalinngangi bygginga.
Þótti kærendum skipulagsyfirvöld ekki hafa sýnt fram á að framkvæmdaaðilar gætu virt þá reglu en þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru í næsta nágrenni.
Heimild: Mbl.is











