
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við Hlemmtorg og borgarlínu um Hlemm.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að um sé að ræða umfangsmikið verkefni sem feli í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu borgarlínu á svæðinu.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í apríl 2026 og er stefnt að því að þeim verði lokið fyrir árslok 2027.
Heildarkostnaðaráætlun verkefnisins er 1.190 milljónir króna. Þar af er áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar 500 milljónir króna. Um sameiginlegt framkvæmdaútboð er að ræða með Betri samgöngum og Veitum.
Aukið rými fyrir gangandi og hjólandi
„Með framkvæmdunum verður Hlemmtorg mótað sem sterkur borgarkjarni með auknu rými fyrir gangandi og hjólandi og bættri aðstöðu fyrir almenningssamgöngur sem verða eina akandi umferðin um torgið,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir að umhverfið í kring verði gönguvænna og meira aðlaðandi fyrir fjölbreytt mannlíf. Þá verði leið hjólandi fólks stórbætt um svæðið ásamt því að sköpuð verður hágæða aðstaða fyrir hjólreiðar á svæðinu, m.a. aðstaða til viðgerða og geymslu hjóla.











