Reitir eru fyrsta fyrirtækið á Íslandi til þess að taka þátt í ReStart, umfangsmiklu hringrásarverkefni á vegum Tarkett í samstarfi við Gólfefnaval. Reitir tóku nýlega á móti viðurkenningu fyrir framlag sitt til verkefnisins eftir að hafa skilað 8,5 tonnun af teppaflísum sem fara í endurvinnslu.
Reitir hafa skilað um 8.500 kg af notuðum teppaflísum frá ýmsum framkvæmdaverkefnum félagsins til Gólfefnavals, sem sá um að koma efninu í ReStart, endurvinnsluverkefni Tarkett í Hollandi.
Magnið jafngildir allt að 2.500 m² af teppaflísum sem ella hefðu farið í urðun eða landfyllingu. Þrátt fyrir flutning erlendis nemur kolefnisspor sendingarinnar einungis um hálfu tonni af CO₂, og með endurvinnslu efnisins með þessum hætti er komið í veg fyrir losun á 11.876 kg af CO₂-ígildum.

Samstarf sem skilar gagnkvæmum árangri
Gólfefnaval er sérverslun sem býður upp á fjölbreytt úrval gólfefna og þjónustu, en félagið er einnig leigutaki hjá Reitum og lykilbirgi í verkefninu ReStart. Tarkett er birgi Gólfefnavals og þriðji stærsti gólfefnaframleiðandi á heimsvísu.
“Verkefnið sýnir hvernig sjálfbærni og ábyrg nýting auðlinda geta farið saman við skilvirk rekstrarleg markmið. Með því að leggja áherslu á endurvinnslu byggingarefnis styðjum við með virkum hætti við hringrásarhagkerfið, segir Berglind Ósk, forstöðumaður sjálfbærni hjá Reitum.”

Michael Aastrup, framkvæmdastjóri Tarkett fyrir Danmörku og Ísland, afhenti Guðna Aðalsteinssyni, forstjóra Reita, viðurkenninguna á hátíðlegum síðdegisfundi hjá Gólfefnaval við Höfðabakka og í kjölfarið fluttu fulltrúar Tarkett fræðierindi um ábyrga umhverfishugsun og hvernig markmið um sjálfbærni og viðskipti geta stutt hvort við annað.

” Við erum þakklát fyrir samstarfið við Reiti og Gólfefnaval sem fellur fullkomlega að stefnu okkar sem leiðandi fyrirtækis á heimsvísu í sjálfbærum gólfefnalausnum. Við erum staðráðin í að taka ákvarðanir sem skapa sjálfbærari heim með virðingu fyrir náttúruauðlindum, segir Michael Aastrup, framkvæmdastjóri hjá Tarkett.”
Hringrásarnálgun mikilvægt stef í sjálfbærnistefnu Reita
Verkefnið er í takt við stefnu Reita í sjálfbærnimálum, þar sem áhersla er m.a. lögð á flokkun úrgangs, og endurvinnslu og endurnýtingu byggingarefnis til að draga úr umhverfisáhrifum og styðja við heilbrigt og sjálfbært samfélag.
Heimild: Reitir.is












