Reykjavíkurborg hefur gert breytingar á hópi verktaka sem koma að framkvæmdum við Ölduselsskóla.
Foreldrar voru upplýstir síðdegis í gær um að loka þyrfti skólanum í dag til að tryggja öryggi nemenda og öryggi á verkstað á meðan skipt er um verktaka. Gert er ráð fyrir að skólastarf hefjist á ný á mánudag, að því er borgin greinir frá.
Þar segir einnig, að við við eftirlit verkefnastjóra hafi komið í ljós að frágangur í verkinu hafi ekki uppfyllt þær gæðakröfur sem gerðar séu í slíkum framkvæmdum og ekki hafði verið brugðist nægilega vel við athugasemdum.
Þá hafi hæfnisviðmið ekki verið uppfyllt í samræmi við samning og ákvörðun verið tekin í samráði við innkaupadeild og lögfræðinga umhverfis- og skipulagssviðs að ljúka samstarfi við verktakann í þessu verkefni og fá annan í hans stað.
Verktaki kallaður út til að tryggja svæðið
„Eftir að samstarfi við fyrri verktaka lauk voru fjarlægðar öryggisgirðingar og tvær innanhússlokanir. Þetta gerðist með nokkrum hraða sem olli því að öryggi var tímabundið ekki eins og það á að vera. Eftirlit borgarinnar brást strax við og nýr verktaki var kallaður út án tafar til að tryggja svæðið,“ segir í tilkynningu borgarinnar.
Þá segir að nýi verktakinn hafi unnið við að tryggja öryggi á svæðinu í gær og fram á kvöld við nauðsynleg þrif og frágang, með stuðningi annarra verktaka, og ljóst hafi verið að halda þyrfti áfram með verkið í dag.
„Ekki er gert ráð fyrir að þessi breyting valdi verulegum töfum á framkvæmdunum í heild. Nýr verktaki mun skila endurskoðaðri verkáætlun í næstu viku og verður staðfest tímalína verkefnisins birt þegar hún liggur fyrir,“ segir í tilkynningunni.
Heimild: Mbl.is












