Sjávarlóðir á Seltjarnarnesi hafa lengi verið afar eftirsóttar og ekki er algengt að hús á sjávarlóðum fari á sölu.
Nú er útlit fyrir að byggt verði á síðustu sjávarlóðinni á Nesinu, Steinavör 8.
Við hlið þeirrar lóðar eru reyndar tvær aðrar en engin áform eru um byggingu þar.
Skipulags- og umferðarnefnd Seltjarnarness hefur afgreitt umsókn um að fá að byggja 381 fermetra einbýlishús á lóðinni en ekki komu neinar athugasemdir við grenndarkynningu.
Félag í eigu Baldvins
Lóðin að Steinavör 8 er í eigu Túnsteins ehf. Nýlega kom fram í Viðskiptablaðinu að Túnsteinn sé fjárfestingarfélag Baldvins Þorsteinssonar forstjóra Samherja.
Heimild: Mbl.is












