Home Fréttir Í fréttum Fallið frá byggingu unglingaskóla við Skautahöllina

Fallið frá byggingu unglingaskóla við Skautahöllina

14
0
Til stóð að reisa unglingaskólann á svokölluðum þríhyrningi aftan við Skautahöllina í Laugardal. Ákveðið hefur verið að finna skuli nýja staðsetningu. Reykjavíkurborg

Borgarráð samþykkti tillögu um að falla frá byggingu unglingaskóla aftan við Skautahöllina í Laugardal. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði tillöguna fram. Hún segir að finna þurfi betri staðsetningu í samráði við hagsmunahópa

Borgarráð samþykkti í gær að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli aftan við Skautahöllina í Laugardal.

Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að finna eigi annan stað fyrir skólann. Það verði gert í samráði við hagsmunahópa í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu.

Fyrri ákvarðanir ekki á traustum grunni byggðar

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði tillöguna fram í gærmorgun. Hún sagði það liggja fyrir að fyrri ákvarðanir hafi ekki verið nægilega vel ígrundaðar og því þurfi að vinna málið betur í samkomulagi við þá hópa sem málið varði.

„Með uppbyggingu unglingaskóla í Laugardal verður til menntastofnun sem verður áhrifavaldur í lífi ungmenna í hverfinu í marga áratugi og setur mark sitt á allt annað skólastarf í Laugardalnum. Slík framkvæmd er af þeirri stærðargráðu að hún þarf að vera vönduð og standast tímans tönn,“ segir Heiða Björg.

Í ljósi ákvörðunarinnar verður skipaður nýr starfshópur sem kallar ólíka hlutaðeigendur til samráðs um framtíðarsýn. Starfshópurinn kemur til með að endurskoða fyrri sviðsmyndir og að finna nýja staðsetningu fyrir byggingu skólans.

Laugdælingar lögðust gegn tillögunni

Tillagan, sem nú hefur verið felld niður, var samþykkt í borgarstjórn í desember 2024. Hún fól í sér byggingu nýs safnskóla fyrir unglinga í Laugardal, í áttunda til tíunda bekk, í Landholtsskóla, Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla.

Safnskólinn átti að standa á svokölluðum þríhyrningi milli Skautahallarinnar og félagsheimilis Þróttar og Ármanns.

Fyrirhuguð staðsetning skólans var umdeild og sökuðu foreldrar í Laugardal borgaryfirvöld meðal annars um að svíkja fyrra samkomulag um skipulag skóla í hverfinu sem gerði ráð fyrir viðhaldi og viðbyggingu við alla þrjá skólana í hverfinu.

Knattspyrnufélagið Þróttur gagnrýndi framkvæmdirnar einnig á sínum tíma. Þá sagði framkvæmdastjóri félagsins ákvörðunina koma flatt upp á félagið sem hafi fullan afnotarétt yfir svæðinu sem byggja átti skólann á. Hann sagði jafnframt að ákvörðunin hefði verið einhliða og að ekkert samráð hafi verið átt við forsvarsmenn Þróttar.

Heimild: Ruv.is