Home Fréttir Í fréttum Nýbyggingum fjölgað mjög í miðbæ Akureyrar og fleiri á teikniborðinu

Nýbyggingum fjölgað mjög í miðbæ Akureyrar og fleiri á teikniborðinu

24
0
Tölvuteikning af Hafnarstræti á Akureyri. Skipulagssvið hefur lagt til að gatan verði gerð að vistgötu, með gangandi og hjólandi í forgangi. Akureyrarbær

Nýbyggingar hafa sprottið upp í miðbæ Akureyrar síðustu ár og fleiri eru á teikniborðinu. Til skoðunar er að Hafnarstræti verði gert að vistgötu, en þar hefur bæði íbúðum og hótelherbergjum fjölgað til muna.

Hótelherbergjum og íbúðum í miðbæ Akureyrar hefur fjölgað verulega á undanförnum árum og enn frekari uppbygging er framundan við Pollinn. Í nýju skipulagi er reiknað með meira mannlífi þar sem gangandi vegfarendur njóta forgangs.

Á Drottningabrautarreitnum í miðbæ Akureyrar hafa sprottið upp nýbyggingar. Við Austurbrú og Hafnarstræti hefur risið 81 ný íbúð og til stendur að opna 86 hótelherbergi í vor – og verða þá hótelherbergin við þá götu orðin um 220 – talsvert fleiri en reiknað var með í upphafi.

Nú þegar sér fyrir endann á þessu hefur bærinn lagt til að Hafnarstrætið verði gert að vistgötu.

Þannig verði rýmkað fyrir gangandi og hjólandi, frá Bautanum og að Drottningarbraut.

Tölvuteikning af Hafnarstræti á Akureyri. Skipulagssvið hefur lagt til að gatan verði gerð að vistgötu, með gangandi og hjólandi í forgangi.
Akureyrarbær

Ætlunin er þá að tengja Hafnarstrætið betur við göngugötuna svokölluðu, sem þó er aðeins „göngugata“ hluta úr ári.

„Já, það hefur verið hugsunin eiginlega frá upphafi, þegar uppbygging hófst hérna að framlengja miðbæinn til suðurs alveg í átt að leikhúsinu“, segir Pétur.

Verði af breytingunni er því þrengt að akandi umferð – en mannlífið fær aukið rými í götunni.

Skipulagið á reitnum hefur mætt misjöfnum viðbrögðum bæjarbúa í gegnum tíðina og mörgum þótti langt gengið í nýbyggingum umhverfis sum elstu hús bæjarins.

Næst á dagskrá er að byggja við Hofsbót, þar er hönnunarvinna í gangi og óvíst hvenær verður hægt að hefjast handa, en það gæti orðið næsta haust.

BSO þarf þá að víkja af byggingarlóðinni, eftir áralanga baráttu um að halda í 70 ára gamla leigubílastöð.

Þar stendur til að reisa fjórar byggingar á þremur til fimm hæðum, með yfir fimmtíu íbúðum.

„Það verður þá verslun og þjónusta á neðstu hæðinni og svo væntanlega íbúðir á efri hæðum í flestum byggingum en það getur líka orðið skrifstofur eða önnur þjónusta.“

Framkvæmdir hafa einnig staðið yfir hinum megin við Hof, við nýja Torfunefsbryggju. Nýtt hafnarsvæði er byrjað að taka á sig mynd, þar eiga að rísa veitinga- og verslunarhús en óvíst hvenær byggingu þeirra lýkur.

Heimild: Ruv.is