
Meirihlutinn í Reykjavík felldi tillögu borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að ganga til viðræðna við lóðarhafa á Ártúnshöfða sem ekki njóta uppkaupsákvæða í sínum lóðarleigusamningum. Þeir lóðarhafar munu þurfa að víkja af lóðunum, rífa húsnæði á eigin kostnað og skila lóðum í upprunalegu ástandi.
Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að þetta fyrirkomulag muni valda fjölda atvinnurekenda á svæðinu verulegu fjártjóni og hefur látið taka saman fasteignamat eignanna sem eru í uppnámi þar sem fram kemur að um er að ræða 20 milljarða sem lóðarhafar tapa nema borgin setjist niður til samninga.
Heimild: Mbl.is











